| Miðvikudagur 24. október 2007 |
| 297. tbl. 11. árg. |
|
DV ber einnig flóttann mikla undir Pétur Pétursson prófessor í guðfræðideild Háskóla Íslands og hann telur að afstaða kirkjunnar til samkynhneigðra skýri hann að hluta en Pétur segir kirkjuna hafa verið „seina“ í þeim efnum. Allt eru þetta lærðar og siðrænar skýringar hjá þeim Sigurði í Siðmennt og Pétri prófessor. Og væru vafalaust ágætar til síns brúks ef ekki vildi svo óheppilega til að í öllum „stöðuga flóttanum úr þjóðkirkjunni“ hafi raunar fjölgað í henni. Það hafa aldrei verið fleiri í þjóðkirkjunni en einmitt núna. Hins vegar hefur fjölgað hraðar í ýmsum öðrum söfnuðum undanfarin ár, ekki síst með auknum fjölda innflytjenda. Þannig fjölgaði félögum í kaþólsku kirkjunni yfir 200% á sama tíma og einnig hefur fjölgað mikið í Krossinum og Félagi múslíma á undanförnum árum. Kannski getur Pétur prófessor mátað þá þróun við hina merku kenningu sína um að flótti bresti á þegar trúfélög séu „sein“ í málefnum samkynhneigðra.
|