| Föstudagur 20. september 2002 |
| 263. tbl. 6. árg. |
|
Sem kunnugt er kusu Hafnfirðingar þennan mann sem bæjarstjóra í vor. Fyrir kosningar lofaði hann því að segja upp þeim samningi sem Hafnarfjarðarbær hafði gert við Íslensku menntasamtökin um skólastarf í Áslandsskóla. Einu mátti gilda hvernig til tækist með rekstur skólans, samningnum yrði sagt upp. Það var ófrávíkjanlegt að enginn mætti reka skóla með öðrum hætti en fellur að pólitískri sannfæringu Lenínistans. Það segir sig sjálft að stjórnendur skóla eiga áhægt um vik þegar þeim hefur verið stillt upp fyrir framan aftökusveit bæjarins á þennan hátt. Við þessa ógn frá bæjarstjóranum bættust svo ofsóknir Eiríks Jónssonar formanns Kennarasambands Íslands en hann er á móti öllum nýjungum og þróun í skólastarfi og er haldinn þráhyggju um mikilvægi „lögverndunar“ kennarastarfsins, það er að segja lögverndaðrar einokunar á starfi kennara og skólastjóra. |