| Miðvikudagur 6. október 2004 | ||||||||||
| 280. tbl. 8. árg. | ||||||||||
uđmundur Magnússon „fulltrúi ritstjóra“ á Fréttablađinu ritađi tvo leiđara í blađiđ nýlega ţví til stuđnings ađ skipa ćtti konu dómara í hćstarétt. Annar bar fyrirsögnina „Hlutur kvenna gleymist ekki“. Helstu rök Guđmundar fyrir ţessari skođun eru ţau ađ konur séu fáar fyrir í réttinum og hafi veriđ fáar gegnum tíđina. Hefur ţetta sjónarmiđ jafnframt litađ fréttaflutning blađsins af ýmsum öđrum ráđningum í ţjóđfélaginu undanfariđ. Í hćstarétti sitja níu dómarar og ţar af eru tvćr konur. Vefţjóđviljinn tekur ekki undir međ Guđmundi ađ skipa eigi konu vegna ţess ađ karlar voru oftar skipađir fyrr á árum eđa séu fleiri nú í réttinum. Ţađ er ekki sanngjarnt gagnvart umsćkjendum ađ fortíđin, sem ţeir eiga enga ađild ađ, sé notuđ ţannig gegn ţeim. Fortíđin verđur ekki leiđrétt međ ranglćti í nútíđ. Ţeim, sem eru ađ setja upp ný fyrirtćki og ráđa til sín nýtt fólk, ber heldur engin skylda til ađ ráđa ađeins konur eđa bara karla eđa eitthvađ sérstakt hlutfall kynjanna. Ţetta hafa Guđmundur og félagar hjá útgáfufélaginu Frétt ehf. raunar haft ađ leiđarljósi. Fréttablađiđ má til ađ mynda alveg hafa karlkyns ritstjóra, karlkyns ađstođarritstjóra, báđa fréttaritstjórana karla og fulltrúa ritstjóra karl. Ţegar skipt verđur um ritstjóra á nćstunni er ekkert viđ ţađ ađ athuga ađ ţađ verđi nýr gamall karl og nýr útgáfustjóri verđi karl og áfram muni ađeins karlar skrifa leiđara í blađiđ. Í stjórn útgáfufélags Fréttar ehf. eru fimm einstaklingar, allt karlar. Ţađ er ţeirra mál. Og jafnvel ţótt í móđurfélaginu, afsakiđ föđurfélaginu, Norđurljósum séu bara karlar í stjórn ađ ógleymdum karlkyns forstjóranum á enginn heimtingu á öđru. Ţađ á jafnt viđ um systurblađ, úps bróđurblađ, Fréttablađsins, DV. Í DV skrifa eingöngu karlar leiđarana, ritstjórarnir eru karlmenn, fréttastjórarnir eru karlar og auđvitađ útgáfustjórinn. Af fimmtán ćđstu yfirmönnum og stjórnarmönnum Fréttablađsins og DV eru fimmtán karlar. Hlutur kvenna gleymist ekki, hann er ţvert á móti eftirminnilegur. Ţegar taliđ er frá Guđmundi Magnússyni og upp úr hjá Frétt ehf. ţá lítur yfirstjórnin sumsé svona út hjá útgáfufélaginu sem hvetur menn međ stríđsfyrirsögnum og ćsifréttum til ađ gleyma ekki hlut kvenna:
Ýmsar konur, ţeirra á međal hinar „heitu“ María og Ađalheiđur og Marel sem er „tilbúin í ađ gera eitthvađ skemmtilegt međ ţér“, skipa hins vegar veglegan sess í auglýsingadálki DV. Stendur DV betur ađ ţví leyti en Fréttablađiđ. Og ekki má heldur gleyma henni Ísafold, hún prentar bćđi blöđin. Hlutur kvenna gleymist ekki á Fréttablađinu og DV. |